Auglýsing

Ræktendur á Íslandi (all breeds).

Könnun

Hvaða tegundahópur heillar þig mest?

úff lélegt blogg hjá mér!!

23. júní 2006 klukkan 02:14
Jæja ég er eitthvað hellvíti léleg í að blogga hérna,en ég ætla að reyna að blogga eitthvað núna, við skulum bara sjá til hvernig það gengur...mörgu að segja frá..
jámm ég er ´buin að vera að vinna annaðslagið í dýralandi og það er ekkert smá gaman, vona bara að ég fá fulla vinnu... síðan var ég að kaupa mér íbúð í kóparvogi löngubrekku þar að segja og flyt næsta miðvikudag....þetta er 3 herbergja 76 fm íbúð, sérhæð með sérinngangi og ser garði sem er girtur og alles, ekkert smá nice að geta bara opnað hurðina og golíat fer bara út sjálfur, líka fínt að Dorian og Golíat geta bara leikið sér útí garði og ekkert vesen....hlakka ekkert smá til að flytja, ætla að reyna að flytja mest allt á miðvikudaginn, fer sko að skrifa undir kaupsamninginn kl 16 og borga á miðvikudag, og er að pæla að biðja pabba að koma og flytja þetta þunga og stóra um 5 leytið og vera buin að pakka öllu og svona áður svo það er bara að flytja og taka uppúr,,hún Hanna mín ætlar að hjálpa mér svo að þetta verður enga stund gert...síðan er ég að fara til svíþjóðar að hitta Dorian og míu og alla og verð þar í 17 daga , fer frá 2-19 julí...ohh það verður svo gaman og ætla að vera rosalega dugleg að umhverfisþjálfa Dorian og æfa hann í taum og svona, tek uaðvitað hina hvolpana sem verða eftir líka....hvolparnir eru orðnir ekkert smá miklar dúllur og líta ekkert smá vel út, þeir verða 10.vikna nuna næsta laugardag!!! ahh get ekki beðið eftir að fara út,það verður ekkert smá gaman, ætla líka á eina sýningu í Tvååker, kaupa blásra og versla smá hahahaha!!!
jæja síðan er hrfí sýningin næstu helgi og sýni ég Afríku aftur, er reyndar að vinna en ég skrepp bara úr vinnunni til þess að sýna, hef ekkert æft hana en við vonum bara það besta,krossið puttana fyrir okkur...!!!!
jahh ætli ég verði ekki að fara að pakka og þrífa og svona svo að ég verði ekki á seinustu stundu eftir helgi....
muna svo að kvitta!!!
Sunníva Hrund Snorradóttir
1 athugasemd

komin tími á smá blogg!!! er það ekki???

20. maí 2006 klukkan 02:25
jæja þá ætla ég að blogga loksins eftir langa leti..og þetta verður örugglega mjög lang hjá mér því að frá mörgu er að segja!!!
Ég fór til svíþjóðar 9 maí og var til 14...ég fór til Míu, sem er með kennel Summerstorm, og fyrir ykkur sem vita ekki hvað það er þá ræktar hun Afghan hounds...Ég fór að skoða nýja hundinni minn hann Summerstorm´s Dorian day aka "Dorian", hann er fæddur 15.apríl....Hann er undan Summerstorm´s A Special Gift og Alphaville´s That´s It That´s Me...Þannig að ég er ´buin að kaupa mér AFGHAN HUND!!!!!!Glottandi Ég ætla síðan að reyna að fara út í julí /ágúst eða bæði og fer síðan í september að sækja hann, hann fer í einangrun 3-5 oktober....Og já hann er Domino á litinn!!!
Hérna er mynd af honum 4 1/2 vikna...


er hann ekki SÆTASTUR??!!!!
En hún Mía er bara allgjört æði!! og fjölskyldan hennar og hundarnir, bara allt saman!!! dýrka þessa familíu!!!!
En síðan fór ég á Bosjökloster, og "Buddha" sem er pabbinn varð BOS, og BOB-2, með CC, núna vanntar honum bara eitt CC til að verða Norskur og sænskur meistari!!!!!!
ég verslaði nú ekkert þarna úti, en Mía ætlar að kaupa allt fyrir migsem ég þarf í sumar, blásara og svona!!! ohh hlakka ekkert smá mikið til að hitta hann aftur og fá han síðan til mín!!!

En ég er bara búin að vera að vinna síðan ég kom heim svo það er nú ekkert meira búið að ske hjá mér hehehehe...en Golíat kallinn var hjá Dagný meðan ég var úti og það var ekkert smá GAMAN hjá honum og familíunni hehehe...Dagný með 2 risa í húsinu hehehe...en ohh hvað ég var heppin þegar ég kom heim, hann Kristján maðurinn hennar Dagnýar var buinn að ÞR'IFA bílinn minn og var hann allveg GLANSANDI fínn, ohh hvað ég var ánægð!!!!! takk enn og aftur DAgný og Kristján fyrir allt saman....þið eruð æðislegust!!! and you know it!!

Golíat varð 2 ára í gær ekkert smá stór og fínn strákur!!!

Ahhh ég nenni ekki að blogga meira, er eitthvað óheirilega löt!!!!

see ya later aligator
Sunníva Hrund Snorradóttir
1 athugasemd

-WARNING- Þvaður um lífið!!!

02. maí 2006 klukkan 02:46
Jæja, ætla bara að vara ykkur við sem nennið ekki að lesa svona lífsþvaður þá getiði slökkt á þessu núna, en fyrir ykkur hin, READ ON!!

Sko mín er ´buin að vera að huxa rosalega mikið þessar seinustu vikur, margt leiðinlegt ´buið að vera í gangi og svolleiðis.....En vá hvað maður er orðin þreytt á því að vera ein, jú ég á mín gæludýr en stundum er það bara ekki nóg!!! ég er ´buin að vera á lausu í meira en 4 og 1/2 ár, bara ´buin að vera að leika mér og ég er komin með nóg af þessu "riða ´buið bless", en hvað ef maður finnur aldrey þennan special someone?? Verður þá maður bara einn það sem eftir er eða á maður að sætta sig bara við það sem maður fær?????
Vanntar eitthvern til að vakna hliðiná, og fara að sofa með, að það sé eitthver þarna úti sem huxar um mann.....er þetta eitthvað svona far away dream eða er þetta eitthvað sem maður getur átt??? Geta sagt við eitthvern,"Ég elska þig" og fá það á móti............

Ahhh Fuck it nenni ekki svona þvaðri!!!!!

Bless, er farin að fá mér bjór og sigo!!!!
Sunníva Hrund Snorradóttir
1 athugasemd

Rólegur Sunnudagur.

23. apríl 2006 klukkan 20:00



Hola everybody!!!!

Þetts er nú bara búin að vera rólgeur sunnudagur, búin að ryksuga og taka smá til (loksins)..en ég setti þessa mynd inn af Kisu, því að hún er sko allgjör vitleysingur, hún geriri ekkert annað en að sofa í rúminu hans Golíats og hann sefur þá bara á gólfinu, og ef að hann vill komast í rúmið þá stendur hann bara á því að reyna að fá kisu í burtu en NEIIII hún haggast ekki....hún er allveg rosaleg þessi kattar bjáni!!!!
En affie hvolparnir urðu 1.vikna í gær og ohhh hvað þeir eru sætir!!! og mér er farið að hlakka geðveikt mikið til að sjá þá "live" og velja og auðvitað að hitta Míu LOKSINS.....og fara á eina sýningu,læra að "grooma" smá og hvernig á að stilla upp og svona, OHHHHHH þetta verður svo GAMAN, ég bara get ekki beðið....

En þegar ég flýg til Köben, þá þarf ég að taka lest til Svíþjóðar, ohh me´r kvíður fyrir því, ég á eftir að enda eitthverstaðar í RASSGATI ef að ég þekki sjálfamig rétt...hmmmmm...nei nei þetta reddast allt saman...en ef að þið hafið eitthverjar hugmyndir af gjöf fyrir Míu þá væri það æðislegt,,,svo endilega kommentið eitthvað...verð að gefa henni eitthvað þegar ég kem, það er eiginlega bara svona skilda finnst mér....

En kl hálf 5, er ég að fara að hitta fólkið sem sér um Voffaborgir, verð í auka vinnu hjá þeim, erum að fara að ákveða daga og svona....veit ekk hvernig ég á að sjóða þessu saman, get nenfilega ekki unnið hjá þeim næstu helgi því að ég verð að passa Akímu,Aríel og krakkana hennar Dagnýar, svo verður Golía auðvitað með mér líka, Dagný og Kallinn eru að fara í eitthverja óvissu ferð frá laugard-mánudags, og ég verð með alla hjörðina ein, hehe það verður bara STUÐ hjá mér HAHAHAHAHA....

En allavena komið nóg í bili , hef hvort eð er ekkert meira að segja....

See ya later aligator!!!
Sunníva Hrund Snorradóttir
1 athugasemd

Nýtt Líf= Ný Síða

22. apríl 2006 klukkan 21:57


Hæ Allir saman.

Ég ákvað að breyta aftur um síðu, já já ég veit, en núna er ég loksins ánægð með þessa, get sett tengla inn og alles, og mynda albúm og allt. Hérna verður sko fullt af dóti til þess að skoða og svona og miklu skemmtilegra. Ég og Golíat fórum upp á Hvaleyrarvatn í dag með henni Suggiez og var það bara mjög gaman, en heldur kallt.

Þessi mynd var tekin þar, er hann ekki flottur litli strákurinn minn??
Jæja ætla að halda áfram með þessa síðu og setja meira af skemmtilegur dóti hérna inn.

See ya leter Aligator..
Sunníva Hrund Snorradóttir
Engin athugasemd